Glussa-Enya

Transpose

x

Hver þekkir seigju glussans
Eðlismass'ans. Þessi jól.
Hver metur áhrif vessans.
Á vegi hjartans. Þessi jól. 

F - Dm - A#

Verse

x

Di do dei, Heilnæm krem
Lífræn krem

Di do dei, Heilnæm krem
Nærandi andlitsmjólk 

Dm - A# - C - F

Chorus

x
4

Hver mun kynna sér smyrsl þín?
Lósjönin blíð? Þessi jól.
Og hver mun kæla vel krem þín?
Nærand'og fín. Þessi jól

F - Dm - A#

Verse

x

Di... do... de...Lifræn krem
Heilnæm krem, Lífræn krem
Heilnæm krem, Nærandi andlitsmjólk

Dm - A# - C - F

Chorus

x
4

Hver veitir húð þinni raka?
Svo þín haka, verði silkimjúk?

Og hver mun kreminu maka?
Hver mun vaka - yfir þinni húð?

Vaka yfir þurri húð? 

F - Dm - A#

Verse

x
4

Di... do... de...eh..Líf... ræn.. Krem..
Heilnæm krem 

G# - D# - C# --- C - F

Brú

x

Hver þekkir rannsóknir Kristmanns?
Á sögu glussans? Þessi jól.

Og hver mun lesa þær upphátt?
i freyðibaði þessi jól

F - Dm - A#

x

x

x

Síðasti Glussinn

Transpose

x

Af glussa, ég gef þér brúsa
Þín uppáhalds vökvakerfisolía
Glussinn, mjúkur og tær
Nærir húð þína að nýju

Af glussa, ég gef þér sopa
Árgangur með fágæta eiginleika
Glussinn, mjúkur og tær
Umvefur þig mildri hlýju

[1x Lykkja / melódían]
D - Bm - Em - A

Chorus 1

x
4

Síðasti glussinn
Í gjafapappír, ég pakka honum inn
Glussabrúsi, í glaðning handa afa
Það elska allir, þennan indæla safa

Húð gamla mannsins af glussa ljómar,
Af vörum hans líða ljúfi jólatónar
Sá aldraði blístrar búggalú
Og húð hans hvíslar á, glæný hafmeyjatattú

D - Bm - Em - A

Verse 1

x
4

Af glussa, ég gef þér brúsa
Þín uppáhalds vökvakerfisolía
Glussinn, mjúkur o g tær
Nærir húð þína að nýju

Af glussa, ég gef þér sopa
Árgangur með fágæta eiginleika
Glussinn, mjúkur og tær
Umvefur þig mildri hlýju

[1x Lykkja / melódían]
D - Bm - Em - A

Chorus 2

x
4

Glussinn mýkir, hnjáliðina
Það auðveldar afa vonandi biðina
Hvenær kemur amma aftur heim frá Las Palmas?
Nei, Það er aldrei of seint að fá sér tapas

Hellum glussa yfir hrygginn, afar marinerast
Nuddum vel upphandlegginn, í kreminu speglast Úh, úh...
aðventuljósin út í glugga
Tappi af glussabrúsa

D - Bm - Em - A

Verse 2

x
4

x

x

x

x

x

Röntgen um jólin

Transpose

Intro

A - F#m- Bm - E
x
4

Ég ætla að kaupa frí-miða í röntgen,
Og láta tékka vel á beinunum
Ég er mögulega viðbeinsbrotinn,
lenti illa í jólasveininum

A - D - E

Verse1

x
4

Ég var að opna ostasnakk,
og guacamole ídýfu
Þegar ég var sleginn niður,
með vintage Yucatan smáskífu

C#m - F#m - Bm - E

Brú

x
4

Ég býð þér í röngten um jólin,
drífðu þig í Domus medica
Saman í röntgen um jólin,
síðan á Yucatan tónleika

A - F#m - Bm - E

Chorus 2

x
4

Ég sé að flest þín bein
eru prýðilega sterk.
Og ef ég geislaði  þau,
það yrði tímamótaverk

C#m - F#m - Bm - E

Verse 2

x
4

Um axlir mínar renna röntgengeislar,
Þessi rannsókn er all ítarleg
Við gætum farið í ómskoðun,
er þessi heilsugæsla ekki  yndisleg?

A - D - E

Verse

x
4

Ég vona að ég sé ekki
verulega illa brotinn
Því Yucatan á tónleikum,
er einfaldlega stórbrotin 

C#m - F#m - Bm - E

brú

x
4

Ég býð þér í röntgen um jólin,
hittumst í Domus medica
Saman í röntgen um jólin,
síðan á Yucatan tónleika

A - F#m - Bm - E

Chorus

x
4

x

x

Er ég of seinn

Transpose

intro

x

Jólin nálgast
Jólin nálgast, Ég vafra um einn ofan í bæ, pæli í því hvað ég eigi að gefa þér
Jólin nálgast, Ég veit að þetta verður allt í læ, n ég er kominn í smá vandræði
Jólin nálgast, Er ég of seinn? Hvað gefurðu konu með ofnæmi?

C- Am - F - G

x
4

Er ég of seinn? Að panta eitthvað fallegt frá Shanghæ
Er ég of seinn? Að flytja inn erlent Gazellu-hræ
Er ég of seinn? Að kaupa glussatjakk, ómæ ómæ
Er ég of seinn? Að sérsauma á þig mittis-jakka
Er ég of seinn? Að hanna fyrir þig hugbúnaðarpakka

F - Dm - G

Chorus

x
5

Jólin nálgast, Verslunarstjórinn veifaði mér hæ, og rétti mér kremprufu
Jólin nálgast, Ég ræddi við skósmiðinn í Grímsbæ, bauð mér í Þorláksmessu-samkvæmi
Jólin nálgast, Er ég of seinn? Hvað gefurðu konu með ofnæmi

C- Am - F - G

Verse2

x
3

Er ég of seinn? Að panta eitthvað fallegt frá Shanghæ
Er ég of seinn? Að flytja inn erlent Gazellu-hræ
Er ég of seinn? Að kaupa glussatjakk, ómæ ómæ
Er ég of seinn? Að sérsauma á þig mittis-jakka?
Er ég of seinn? Að hanna fyrir þig hugbúnaðarpakka?

F - Dm - G

Chorus

x
5

x

x

x

x

x

Óbærilegur sléttleiki húðarinnar

Transpose

x

Ég færi þér poka af magnesíum flögum
Helli volgri baðolíu yfir mjúkan háls
Klæði þig í þurra og örvandi bast-lúffu
Bíð þér með mér í aðventuferð uppá Krókháls

Les upphátt fyrir þig innihald kremprufu
Árstíðarbundinnar vöru úr the Body Shop
Ræðum nærandi mild áhrif papaya
Sæki handa þér nýþveginn frotte-slopp

Berfættur læðist gegnum balsam-ilminn
Ber lífrænt rakakrem á hrjúfan sköflunginn
Það er svo dásamlegt að dekra aðeins við húðina
Tilhlökkun jólanna dansar við krem hjúpinn

G - Am - Em - G - Em - D

Verse 1

x
6

Þú stígur upp úr árlegu jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar
Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, jólaljósin glampa á spegilsléttu enni þínu
Þú stígur upp úr árlegu jólabaði, Einstök Aloa-Vera blanda hjúpar þína vanga
Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar

C - D - Am - Em

Chorus

x
4

Hvað kostar aftur þessi frábæri húðmaski?
Hefur virka efnið eitthvað verið rannsakað?
Er þessi skeggolía áreiðanleg vegan?
Framleidd í Köln fyrir Frakklandsmarkað

Hreinsum óhreinindi. Ég vill vernda húðina
Veita henni þann raka sem hún þarfnast
Hvernig er það? Á mamma þín rakakrem?
Allir þurfa eiga gott og græðandi lósjön

Ég hvísla að þér nærandi orðum um húðina
Maka ilmsöltum á spegilsléttar axlirnar
Húðin ferðbúin, rakastigið fullkomið.
Skellum okkur í aðventu ferð uppá Krókháls.

G - Am - Em - G - Em - D

Verse 2

x
6

Þú stígur upp úr árlegu jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar
Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, jólaljósin glampa á spegilsléttu enni þínu
Þú stígur upp úr árlegu jólabaði, Einstök Aloa-Vera blanda hjúpar þína vanga
Þú stígur upp úr alvöru jólabaði, Óbærilegur sléttleiki húðarinnar

C - D - Am

Chorus

x
4

x

x

x

x

x

J​ólakveðja bændablaðið

Transpose

x

Ég óska mér tólf tonna beltagröfu, 
Smurolíuhandbók fylgir með
Bakkói á Hitachi traktorsgröfu,  
Landbúnaðartæki til sölu
Glussadrifna snjótönn á skot-bómulyftara, 
Gömul steypuhrærivél
Gott væri að eiga kraftmikinn trjákurlara,  
Og ódrepandi Hondu CR-V

E - G#m - A

x
4

Hugheilar Jólakveðjur frá Per:Segulsvið,
Traktorsdrifnar rafstöðvar, fellanleg rúlluhlið,
Með einlægum óskum, Um glussa jóla-frið
Hugheilar jolakveðjur frá Per Segulsvið.

F#m - E - B

Chorus

x
5

Mig langar í glussa knúna skólpdælur, 
Með sex lítra forþjöppu

Bensíndrifin staura bor, bása- og drenmottur, 
fjóra Continental hjólbarða

Öfluga Yamaha rafstöð, sóluð vetrardekk, 
sterk og vönduð smíð

Samstæða standlampa úr eik eða tekk, 
við eigum fyrirliggjandi

Hágæða spæni og vel þurrkaða spón köggla, 
Nú aftur á tilboði

Gott væri ef þú gæfir mér sænska vefstóla, 
Og ódrepandi Hondu CR-V

E - G#m - A

Verse2

x

Hugheilar Jólakveðjur frá Per:Segulsvið
Lítið ekin Scania, Niðursoðin svið
Með einlægum óskum um Glussajóla-frið

Svefnbekkur frá Kristjáni, Weckman veggjastál,
Brakandi ferskt og nýupptekið rósakál
Með einlægum óskum um Glussajóla-frið
Hugheilar Jóakveðjur frá Per: Segulsvið

F#m - E - B

Chorus

x

x

x

x

x

x

Jól á brúsa

Transpose

intro

„Haukur minn! Myndirðu koma og hjálpa mér aðeins vinur.
Ég er í smá vandræðum með jólabrúsann.
Ventillinn virðist eitthvað stífur.
Lommér að sjá, já já, nú held ég þetta sé komið.
Ég náði að mýkja ventilinn aðeins.
Jæja strákar. Nú opna ég á brúsann maður.
Stígðu aðeins frá Arnar minn, þú vilt ekki fá kalkúnskip í augað ástin.
Jæja, allir tilbúnir. Nú sprautast þau út maður!
Hæ hæ! Nú sprautast út jólin..“

D - Bm - Em - A
x
6

Með mínum vísifingri, ég úða skraut´og glingri
Út þrýstist jóladúkur, blágrenitré og rjúpurilmandi greninálar,
svo kætast kardinálarA
llthreint í einum hvelli ... það sprautast út jól

G - Em - A

Verse1

x
4

Það sprautast út ... aðventuljósin mild
það sprautast út ... bróderuð dýrlingamynd
það sprautast út ... keramik jólakind
Það sprautast út ... Það sprautast út jól

D - Em - A

Chorus

x
4

Enn jólabrúsinn dansar, glitrandi skart og kransar
Úr úðabrúsa rennur, gyllt jólaskraut og spennur
Prestur í mittisjakka, glussi á jólatjakka
Allthreint í einum hvelli ... það sprautast út jól

G - Em - A

Verse2

x
4

Það sprautast út ... Músastigar að vild
það sprautast út ... jólastjarna sígild
það sprautast út ... Ilmandi sumargotsíld
Það sprautast út ... Það sprautast jól

D - Em - A

Chorus

x
4

Ekkert í brúsann vantar, jólaöl einhver pantar
Út streymir kaldur safi, aðventuorkugjafi
Glasseruð kalkúnaspjót, Orabaunafljót
Allthreint í einum hvelli .. það sprautast út jól

G - Em - A

Verse 3

x
4

Það sprautast út ... aðventuljósin mild
það sprautast út ... bróderuð dýrlingamynd
það sprautast út ... keramik jólakind
Það sprautast út ... Það sprautast út jól

D - Em - A

x
4

x

x

x

Glussanótt

Transpose

x

Það var eitt sinn um aðventu,
Ég var á gangi um vetrarnótt
Heyrði prest þá skríkja dátt,
Að öðru leyti allt var hljótt

A - D - A - F#m - Bm - E - C#m - F#m - Bm - E

Verse

x
4

Ég leit um öxl og svei mér ei,
ef ekki Drottinn þar, seisei
ég sá með glussa-svuntu,


við glussa-kar, og dýfð í þar
presti´á aðventu

A - G# - G - F#m - Bm - Dm --- A - E - A - D - Bm - E

Brú

x
4

Það var um miðja aðventu
Drottinn með glussa-svuntu.
Stóð yfir glussa-brunni

Glussa heilögum hann jós
við engils-undirleik banjós,
sóknar, glussi gældi við prest ,
lalalala glussi gældi við prest.

A - Bm - C#m - D - E - A - E --- A - C# - D - D# - E - D

Chorus

x
4

Seitlaði glussi álengdar,
Seint gat sá glussi talist slor
Úr skjóli handan við gamlan Dodge,
Ég fylgdist með föður vor

A - D - A - F#m - Bm - E - C#m - F#m - Bm - E

Verse

x
4

Drottinn þynnti glussa sinn,
Jós yfir sóknarprestinn
Svo húð hans myndi nærast.

Um glussabað, Hann Drottinn bað,
Það presti var kærast

A - G# - G - F#m - Bm - Dm --- A - E - A - D - Bm - E

Brú

x
4

Það var um miðja aðventu
Drottinn með glussa-svuntu.
Stóð yfir glussa-brunni
Glussa heilögum hann jós
við engils-undirleik banjós,
sóknar, glussi gældi við prest,
lalalala glussi gældi við prest.

A - Bm - C#m - D - E - A - E --- A - C# - D - D# - E - D

Chorus

x
4

Að lokum prestur í glussann grét,
Drottinn í jötu lagði kút
Hann lagð´á bringu hans glussatjakk,
Og glussa-vættan klút

A - D - A - F#m - Bm - E - C#m - F#m - Bm - E

Verse - dropp

x
4

Sá ég lokast glussa-kar,
Og svo birtust bakarar
Með fullt fangið af kleinum

Þá Drottinn hvarf,
En fagna varð Glussanum hreinum

A - G# - G - F#m - Bm - Dm --- A - E - A - D - Bm - E

Brú

x
4

Það var heilög gluss-anótt,
Glussi Drottins flæddi hljótt,
Um sóknarprestsins enni.
Seig var sú glussa-blessun,
Aldrei gleyma því ég mun,
hvernig, glussi gældi við prest,
lalalala glussi gældi við prest

A - Bm - C#m - D - E - A - E --- A - C# - D - D# - E - D

Chorus

x
4

Glussakap

Transpose

x

Ég flyt inn frá Ítalíu, Há-gæða gír-olíu
Margfalt betra en feiti, Ég sólginn er í eldsneyti
Ég glussann finn á ný, Streyma mér innaní
Ég flyt hann inn frá Ítalíu

C - Dm - G - C - Am - Dm7 - G - C - Am - Dm7 - G

Chorus

x
6

Í kjallaranum allt er klárt, Glussa Stampinn þreif
Rafstöðin í horninu, Ég start-enni með sveif
Glussadælan tilbúin, Slanga, trekt og skeið
Ég finn að ég bólgna, Er ég finn minn ástfólgna
Glussa streyma rétta leið

C - Dm7 - G - C - C7 - F - Dm - Em - A - F - G

Verse

x
4

Ég flyt inn frá Ítalíu, Há-gæða gír-olíu
Margfalt betra en feiti, Ég sólginn er í eldsneyti
Ég glussann finn á ný, Streyma mér innaní
Ég flyt hann inn frá Ítalíu

C - Dm7 - G - C - Am - Dm7 - G - C - Am - Dm7 - G

Chorus

x
6

Ég hræri glussan rangsælis, Hann ilmar aldeilis
Ég bæti í hann rauðspritti, Mjúk olían er blizz
Ég kveiki undir hellunni, og brugga glussa seið
Ég pressa þennan vessa, Með tárum saftið blessa
Svo glussinn rati rétta leið

C - Dm7 - G - C7 - F - Dm - Em - A - F - G

Verse

x
4

Ég flyt inn frá Ítalíu, Há-gæða gír-olíu
Margfalt betra en feiti, Ég sólginn er í eldsneyti
Ég glussann finn á ný, Streyma mér innaní
Ég flyt hann inn frá Ítalíu.

C - Dm7 - G - C - Am - Dm7 - G - C - Am - Dm7 - G

x

x

x

x

x

Glussabarn

Transpose

Intro

G - C - D
x

Okkur er fæddur frelsari,
Glussa jóla-jesúbarnið Per

með lítinn glussa geislabaug,
hann lýsir upp desember

G - C - D

Verse

x
4

Hundgá heyr
minn glussa-her ,
í glussa-jötu  hér

okkur er fæddur frelsari,
glussa-jóla jesú barnið Per

G - C - D - G - Em - Am7 - D

Chorus

x
4

Per blístrar fallegt lítið lag, 
úr "Dansar við úlfa" 
með glussa skreyttan ventlabaug,
og slaufur um ökklana

G - C - D

Verse

x

Fyllti jötu frelsarans,
iðnaðar-glussi trúið mér 

okkur er fæddur frelsari,
glussa-jóla jesú barnið Per

G - C - D - G - Em - Am7 - D

Chorus

x
4

Foreldrar Pers vildu ekki sjá þetta
glussa-skreytta barn 

þau földu hann í Mjóddinni,
hann var alltof árásargjarn

G - C - D

Verse

x
4

Glussa kristur frelsar
lýsti upp gjörvalt Neðra Breiðholt 

"þú verður fínn gröfumaður",
sagði kennslukona hans afar stolt.

Fyllti jötu frelsarans,
iðnaðar-glussi trúið mér 
okkur er fæddur frelsari,
glussa-jóla jesú barnið Per

G - C - D - G - Em - Am7 - D

Chorus

x
4

x

x

x

Glussasnjór

Transpose

x

Kátur glussinn úr gröfu flæðir,
gleður jólasvein og fæðir

Fegrar glussi Chicago.
Glussasnjór..

Prýðir jólakökur og kransa,
mjúkar kinnar Tony Danza,

Axlir Gumma og Óla Jóh.
Glussasnjór....

C - Dm7 - G - Dm7 - G

Verse

x
4

Þekur gasgrill og greniskóg
og gagnaugun á Keikó.

Jóla jafningur frelsarans,
Glussi Jósefs og Maríu hans

G - Am7 - D - G --- G - E7 - A - D

Chorus

x
4

Glussa elgurinn áfram rennur,
Þekur graflax og glimmer-spennur 

En það sem yndislegast er þó.
Glussasnjór..

C - Dm7 - G - Dm7 - G

Verse

x

x

x

x

x

x

x

Er nauðsynlegt að fasann út?

Transpose

x

Með kremum, þykkur andlitsmaski
Hylur gömul sár
Sem glussinn gróf í huga mannsins
Vélsmiðurinn grætur sárt
Glussar … þurfa að víkja
Á hvarmi hans blika tár
Í martröðum hans birtist WD
Fjörutíu … águlum grunni … úðabrúsinn heiðblár

F - C - A# --- F - C - Dm - G - A#

Verse

x
4

Hvað heldur þú?
Er nauðsynlegt að fas´ann út?
Hvað heldur þú?
Er nauðsynlegt að fas´ann út

F - Gm - A#m

Chorus

x
4

Glussa olían … á ekki heima
Undir miklum þrýstingi
hana má alls ekki geyma
Þar sem litlir vélsmiðir ná til
Þegar jólin … gylla vötnin
Ég vélsmiðinn minn finn
Við hlið hans sé ég tjakkinn.
Og á gólfinu … galopinn …. Glussabrúsinn

F - C - A# --- F - C - Dm - G - A#

Chorus

x
4

Hvað heldur þú?
Er nauðsynlegt að fas´ann út?
Hvað heldur þú?
Er nauðsynlegt að fas´ann út

F - Gm - A#m

Chorus

x
4

x

x

x

x

x

Glussahátíð

Transpose

x

Ég hjúpa þig heilögum glussa,
Hreinsandi vessa sérhver jól

Þessi hefð er sígild,
Áhrif hans blíð og mild

Húð þín glitrar helg sem kranabjór  

G - Am - D - C - G --- G - C - Cm - G - Em - Am - D

Verse

x
4

Ég hjúpa þig heilögum glussa,
Mjúkar ég herðar þínar þvæ 

Höku þína nudda og hlæ,
Frelsarans glussa hátíð er í bæ

G - Am - D - C - G --- G - C - Cm - G - Em - Am - D - G

Chorus

x
4

x

x

x

x

x

x

x

Í keilu

Transpose

Ég man þegar við kynntumst fyrst
Ég var tuttugu og fimm og hálfs
Við unnum saman á Max-einum
Dekkjaverkstæði uppá Krókháls

Þú sást um dekkjahótelið
Ég sá um ýmsar smáviðgerðir
Þú varst fáránlega góður í keilu
Bauðst mér að horfa á

D - Em - Bm - G
x
4

Það var sem að ég hefði vaknað
Allt það sem að ég hafði saknað
Keypti mér keilufatnað
Skórnir smellpössuðu mig á…

D - Em - Bm - G

Chorus

x
4

Ég mæti í vinnuna í dag
Í gljáfægðum keiluskóm
Byrjaður að æfa keilu
Afhjúpaði leyndardóm

Þú spreyjaðir innlegg mín
Glussa úr úðabrúsa góðum
Kallinn byrjaður í keilu
af keilu fæ aldrei nóg

D - Em - Bm - G

Verse

x
4

Við æfum saman keilu (keilu) æfum keilu
Að æfa keilu (keilu) saman í keilu
Keiluuu uúúú … keiluuu uúú 

D - Em - Bm - G

Chorus

x
4

Í keiluhöllinni ég fann
Fulla brúsa af bowling bóni
Byrjaður að æfa keilu
Gleymi mínum húðsjúkdómum

úr sleipri olíunni rann
blíður sannleikur um bowling
Kallinn byrjaður í keilu
af keilu fæ aldrei nóg

D - Em - Bm - G

Verse

x
4

Það var sem að ég hefði vaknað
Allt það sem að ég hafði saknað
Keypti mér keilufatnað
Skórnir smellpössuðu mig á… 

D - Em - Bm - G

Chorus

x
4

Ég mæti í vinnuna í dag
Í gljáfægðum keiluskóm
Byrjaður að æfa keilu
Afhjúpaði leyndardóm

Í keiluhöllinni ég fann
ég fann þig minn bowling bróðir
Kallinn byrjaður í keilu
af keilu fæ aldrei nóg

D - Em - Bm - G

Verse

x
4

Við æfum saman keilu (keilu)
við æfum keilu
Að æfa keilu (keilu) saman í keilu
Keiluuu uúúú … keiluuu uúú

D - Em - Bm - G

Chorus

x
4

x

x